Birna M. Svanbjörnsdóttir tekur þátt í opnunarmálstofu Menntakviku 2025

HA-ingar taka virkan þátt í Menntakviku sem hefst í dag
Birna M. Svanbjörnsdóttir tekur þátt í opnunarmálstofu Menntakviku 2025

Menntakvika, árleg ráðstefna á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands um menntavísindi, leiðir á hverju ári saman fjölda fagfólks og hagsmunaaðila sem láta sig menntamál varða. Háskólinn á Akureyri er einn af bakhjörlum Menntakviku og líkt og áður taka HA-ingar virkan þátt í ráðstefnunni sem hófst í dag og stendur yfir næstu tvo daga.

Opnunarmálstofa Menntakviku fer fram kl. 14.30 í dag. Yfirskrift hennar er Kennaramenntun í deiglunni – Hvar stöndum við? Birna M. Svanbjörnsdóttir, dósent við Kennaradeild, tekur þátt í henni ásamt Berglindi Gísladóttur, dósent við Menntavísindasvið. Erindi þeirra heitir Sameiginleg sýn á kennaramenntun á Íslandi? Þá mun Birna einnig taka þátt í pallborðsumræðum á málstofunni.

Öll eru velkomin á Menntakviku, hvort sem er á staðnum eða í streymi. Nánari upplýsingar má nálgast hér.

Vinnustofa undir stjórn Kristian Guttesen

Á laugardaginn mun Kristian Guttesen, lektor við Kennaradeild, stýra smiðjunni Efling dygða í gegnum ljóðmennt. „Markmið smiðjunnar er að efla sjálfstæða, skapandi og gagnrýna hugsun í gegnum heimspekilega samræðu og ljóðmennt,“ segir meðal annars í lýsingu vinnustofunnar.

HA-ingar á Menntaviku

  • CUTIE – Hvernig er unnið að samsköpun (e. co-creating) með nemendum? Fjölbreyttar leiðir mismunandi háskóla við innleiðingu gervigreindar
    Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi KHA
  • Tungumálanám og fjöltyngi á heimilum og í skólum
    Zulaia Johnston da Cruz, doktorsnemi við Menntavísindasvið HÍ, Hanna Ragnarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ og Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA
  • Að skapa rými fyrir hæglæti í leikskóla
    Anna Magnea Hreinsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ og Kristín Dýrfjörð, dósent við Kennaradeild HA
  • Að fara út af sporinu: Ferlið dýrmætt fyrir tengsl og nám
    Anna Lilja Sævarsdóttir, aðjúnkt við Kennaradeild HA
  • Samræmd próf í skólakerfi varðleika
    Þorlákur Axel Jónsson, aðjúnkt við Kennaradeild HA
  • Tengsl fræða og starfs: Þróun starfsnáms í kennaranámi við HA
    Guðmundur Engilbertsson, lektor við Kennaradeild HA og Birna M. Svanbjörnsdóttir, dósent við Kennaradeild HA
  • Samræðufélagar: Námsefni og kennslufræði fyrir fjöltyngda nemendur
    Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA og Margrét Þóra Einarsdóttir, aðjúnkt við Kennaradeild HA
  • Rannsóknarsamstarf kennara og rannsakenda: Áskoranir og tækifæri
    Margrét Þóra Einarsdóttir, aðjúnkt við Kennaradeild HA og Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA
  • Háskólakennsla á nýjum forsendum: Stafræn hæfni, sköpun og námssamfélag án staðsetningar
    Hjördís Sigursteinsdóttir, dósent við Viðskiptadeild HA og Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður KHA
  • Heimahöfn: A Collaborative Initiative for University Staff Development in Iceland
    John Baird, kennsluráðgjafi við HR, Guðrún Geirsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ og Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi KHA
  • Heilsuferðalagið: Þversniðsrannsókn á Íslendingum fæddum 1988
    Sæunn Rut Sævarsdóttir, doktorsnemi við HÍ, Erlingur Jóhannsson, prófessor við HÍ, G. Sunna Gestsdóttir, dósent við HÍ, Nanna Ýr Arnardóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild HA, Ársæll Már Arnarsson, prófessor við HÍ, og Kristrún María Björnsdóttir, doktorsnemi við HA
  • Líkamleg hreyfing íslenskra ungmenna frá 15 til 17 ára aldurs: Þróun eftir tíma dags og tegund hreyfingar
    Þuríður Helga Ingvarsdóttir, doktorsnemi við HÍ, Nanna Ýr Arnardóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild HA, Vaka Rögnvaldsdóttir, dósent við HÍ, Rúna Sif Stefánsdóttir, lektor við HÍ, Kong Chen Senior Clinical Investigator and Director við National Institutes of Health, Metabolic Clinical Research Unit, Vaka Rögnvaldsdóttir, dósent við HÍ, Rúna Sif Stefánsdóttir, lektor við HÍ og Erlingur Jóhannsson, prófessor við HÍ
  • Heilsuferðalagið: Þversniðsrannsókn á Íslendingum fæddum 1988
    Kristrún María Björnsdóttir, doktorsnemi við HA, Nanna Ýr Arnardóttir, lektor við Hjúkrunarfræðideild HA, Erlingur Jóhannsson, prófessor við HÍ, Guðrún Sunna Gestsdóttir, dósent við HÍ, Ársæll Már Arnarsson, prófessor við HÍ, og Sæunn Rut Sævarsdóttir, doktorsnemi við HÍ
  • Sameiginleg sýn á kennaramenntun á Íslandi
    Birna M. Svanbjörnsdóttir, dósent við Kennaradeild HA og Berglind Gísladóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ
  • Marglaga samræðurými í stafrænt vel búnum stærðfræðitímum
    Sólveig Zophoníasdóttir, aðjúnkt við Kennaradeild HA
  • Hugmyndafræði og kennslufræðilegar nálganir í kennslu nemenda í íslenskuverum Reykjavíkurborgar
    Susan Rafik Hama, lektor við HÍ, Renata Emilsson Peskova, dósent við HÍ og Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA
  • Breytingar í lífi ungmenna við lok grunnskóla: Berskjöldun og kvíði
    Bergljót Þrastardóttir, lektor við Kennaradeild HA og Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA
  • INSPECT-rannsóknin: Þrír fletir á líðan nemenda á Íslandi, í Danmörku og Finnlandi
    Guðmundur T. Heimisson, lektor við Sálfræðideild HA
  • Viðhorf kennara til takmarkana á skólastarfi vegna COVID-19
    Garðar Ágúst Árnason, prófessor við Kennaradeild HA
  • „Þegar við breytum hugsunum okkar þá breytist heimurinn í kringum okkur”: Hlutverk listrænna rannsóknaraðferða og lifandi menntunarfræða í þekkingarsköpun kennara/nema
    Karen Rut Gísladóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ, Edda Óskarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ, Ívar Rafn Jónsson, lektor við Kennaradeild HA og Ásta Möller Sívertsen, aðjúnkt við Menntavísindasvið HÍ
  • Akademískt læsi: Lykill að virkri þátttöku og farsæld í háskólanámi
    Ingibjörg Sigurðardóttir, aðjúnkt við Félagsvísindadeild HA og Sigurður Kristinsson, prófessor við Félagsvísindadeild HA
  • Staða einstæðra mæðra og barna þeirra í íslensku velferðarsamfélagi
    Berglind Hólm Ragnarsdóttir, lektor við Félagsvísindadeild HA, Valgerður S. Bjarnadóttir, dósent við deild menntunar og margbreytileika HÍ og Bergljót Þrastardóttir, lektor við Kennaradeild HA
  • Forysta undir álagi: Tvíþætt reynsla skólastjórnenda í Covid-19
    Sigríður Margrét Sigurðardóttir, dósent við Kennaradeild HA og Hjördís Sigursteinsdóttir, dósent við Viðskiptadeild HA
  • Munnleg próf í háskóla: Áhrif prófforms á upplifun nemenda og námsárangur
    Vera Kristín Vestmann, aðjúnkt við Viðskiptadeild HA
  • Menntun og þátttaka flóttabarna og -ungmenna
    Hrafnhildur Kvaran, doktorsnemi við Menntavísindasvið HÍ, Susan Rafik Hama, lektor við Menntavísindasvið HÍ, Hermína Gunnþórsdóttir, prófessor við Kennaradeild HA og Hanna Ragnarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ

Áhugasöm geta nálgast ítarlegri dagskrá og lýsingu erinda hér.