Háskóladagurinn hefst í dag

Opið er fyrir umsóknir í allt nám við Háskólann á Akureyri
Háskóladagurinn hefst í dag

Háskóladagurinn hefur göngu sína í dag, laugardaginn 28. febrúar. Á miðnætti opnaði einnig fyrir umsóknir í allt nám við Háskólann á Akureyri.

Háskóladagurinn er samstarfsverkefni allra háskóla á Íslandi með það að markmiði að kynna allt grunnnám sem er í boði í háskólum landsins. 

HA-ingar verða í HR og Sögu

Stúdentar og starfsfólk Háskólans á Akureyri kynna allt grunnnám HA í Háskólanum í Reykjavík. Þá mun okkar fólk einnig standa vaktina í Sögu þar sem hægt verður að kynna sér hjúkrunarfræði, iðjuþjálfunarfræði, kennarafræði, lagareldi, líftækni, sjávarútvegsfræði, tæknifræði og tölvunarfræði.

Háskóladagurinn verður settur klukkan 12:00 í dag og standa dyrnar opnar til kl. 15:00. Eins og áður sagði standa allir háskólar landsins að Háskóladeginum og geta áhugasöm kynnt sér fjölbreytt háskólanám á nokkrum stöðum í Reykjavík í dag. Hér á vefsíðu Háskóladagsins má nálgast nánari upplýsingar um staðsetningar.

Mikið virði í því að kynna sér nám frá fyrstu hendi

Í Háskólanum í Reykjavík verða básar með öllum námsleiðum í grunnnámi. „Við erum búin að búa til flott sýningarsvæði hjá vinum okkar í HR þar sem stúdentar og starfsfólk munu standa vaktina í dag og kynna allt það fjölbreytta grunnnám sem er í boði við HA. Ég hvet öll þau sem eru að huga að háskólanámi til þess að nýta Háskóladaginn vel og kynna sér hvað er í boði. Það er mikið virði í því að kynna sér nám frá fyrstu hendi. Okkar fólk er ómetanlegt þegar kemur að því að kynna háskólann okkar og það er alls ekki sjálfsagt að öll séu alltaf boðin og búin til þess að leggja hönd á plóg. Það kemur þó ekki á óvart því Háskólinn á Akureyri er eitt stórt samfélag,“ segir Sólveig María Árnadóttir, verkefnastjóri samfélagsmiðla og samskipta.

Sólveig hvetur fólk til þess að nálgast Háskóladaginn með opnum hug. „Ég hvet fólk til þess að kíkja á vefsíðu Háskóladagsins og kynna sér hvar háskólarnir kynna sitt nám. Það er mikið virði í því að nálgast þennan dag með opnum hug. Á þessum degi er vel hægt að finna draumanámið og jafnvel líka það óvænta. Það er nefnilega alveg við því búið að rekast á námsleið sem þú vissir hreinlega ekki að væri til.“ 

Vestur og norður í mars

Háskóladagurinn sinnir einnig landsbyggðinni og ferðast á ólíka staði á hverju ári. „Fyrirkomulag dagsins hefur þróast í gegnum árin. Þegar ég sjálf var stúdent við HA þá fór af stað hringferð um landið og voru allir framhaldsskólar landsins sóttir heim, svo dæmi sé tekið. Við höfum hins vegar þróað fyrirkomulagið á þann veg að við heimsækjum Egilsstaði, Höfn, Vestmannaeyjar og Ísafjörð annað hvert ár og erum í Reykjavík og á Akureyri hvert ár. Við leggjum okkur fram við að bjóða nærliggjandi framhaldsskólum á Háskóladaginn og þannig tryggjum við að framhaldsskólanemar á landsbyggðinni fái allir að komast á Háskóladaginn á einhverjum tímapunkti skólagöngunnar,“ segir Sólveig.

Hvað vilt þú verða?

Hér á vefnum getur þú kynnt þér allt grunnnám við HA og fengið upplýsingar um námið og möguleika að námi loknu. Í HA er einnig að finna einstakar námsleiðir sem þú finnur hvergi annars staðar.

Facebook viðburðir

HA-ingar hlakka mikið til að hitta ykkur öll á Háskóladaginn. Hér getur þú sett Háskóladaginn í dagatalið þitt í gegnum Facebook: