Hólmfríður Lilja Birgisdóttir, verkefnastjóri gagnagreiningar og fjárhags, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast lífinu í háskólanum
Við hvað starfar þú hjá HA og hvað ertu búin að vera lengi í starfi?
Ég vinn sem verkefnastjóri gagnagreiningar og fjárhags og hef sinnt því starfi í tvö ár núna í september.
Hvernig finnst þér háskólalífið á Akureyri?
Mér finnst háskólalífið á Akureyri mjög skemmtilegt. Háskólinn á Akureyri nær einhvern veginn að vera bæði lítill og stór eftir því hvað hentar hverju sinni, svona risasmár.
Skólinn er mjög persónulegur og dagsdaglega upplifir maður skólann sem mjög kósý skóla, en það er líka kraftur í merki skólans og mikill eldmóður hér innanhúss til að gera skólann sterkari bæði á alþjóðavettvangi og hér heima. Það er líka svo mikill metnaður í fólkinu okkar að bjóða upp á gott og spennandi nám og það er svo gaman að fylgjast með vinnunni á bakvið það.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?
Minn stærsti draumur sem barn var að verða sjónvarpsþula á RÚV! Amma átti fínan símastól sem var frammi á gangi hjá henni og sem barn sat ég stundum í stólnum og æfði mig í þulustarfinu. Ég tók t.d. einu sinni jóladagatalið mitt með yfir til ömmu og opnaði glugga dagsins í stólnum á meðan ég kynnti inn þátt kvöldsins út frá því sem var í glugganum. Nú man ég reyndar ekki hvort jóladagatal RÚV það ár var Klængur sniðugi eða Hvar er Völundur? Ég var alveg viss um að ég væri fædd til að verða þula á RÚV!

Svo hætti RÚV með þulurnar svo ég þurfti að finna nýjan draumastarfsferil og lengi vel ætlaði ég mér að verða lögfræðingur, mögulega eftir að ég sá myndina Legally Blonde. Um tíma langaði mig að verða kennari og svo ætlaði ég mér að verða endurskoðandi en einhvern veginn endaði ég hjá fjármálum og greiningu hjá HA og finnst það starf eiginlega fullkomin blanda af öllu því sem mig langaði að verða – nema ég fæ ekki nógu mörg tækifæri til að sitja sæt í stól að lesa upp dagskrárliði eins og þulurnar en maður fær víst sjaldan allt sem maður óskar sér!
Í dag er stærsta markmiðið samt bara að hafa frelsi til að vera ég og vera ánægð þar sem ég er hverju sinni; draumastarfið er í raun ekki lengur til heldur er draumurinn bara að vera ánægð.
Hvað finnst þér gera HA sérstakan?
Mannflóran hér innanhúss er svo fjölbreytt og það er alveg einstakt hvað vinnustaðurinn leyfir þér að vera eins og þú ert. Ég er mjög þakklát HA fyrir að leyfa mér að vera eins og ég er. Það leyfir mér að vera ég sem elska að fara á tónleika út um allan heim, elska kettina mína alltof mikið og dýrka að vera Pole Fitness þjálfari hjá Phoenix Pole Stúdíó hér á Akureyri fyrir utan vinnu – það er æðislegt að fá leyfi til að vera þú sjálf og gerir svo mikið fyrir mig að þurfa ekki að troða mér í eitthvað form sem ég passa ekki í.

Skemmtilegasta minning þín í HA?
Mínar uppáhaldsminningar úr HA sem stúdent voru góðar vísindaferðir og svo á ég einnig góðar minningar úr prófatíð. Ég er kannski smá furðuleg en ég alveg elskaði prófatíð. Í prófatíð þjappaðist allur stúdentahópurinn saman til að læra saman, kenna hvert öðru og það voru skýr markmið fyrir hópinn á þeim tíma sem var einfaldlega að við myndum öll ná prófunum til að geta haldið áfram saman á næstu önn. Ég eignaðist mína nánustu háskólavini í prófatíð og nú nokkrum árum seinna eru þessi vinasambönd enn mjög sterk. Í einni prófatíð hittist sami hópurinn í sömu stofunni alla daga og kláraði prófatíðina saman með stæl!
Ég trúi því að álagstímabil líkt og prófatíð sýni þér hvað virkilega býr í fólki, hvernig það forgangsraðar lífi sínu og hvernig það kemst í gegnum erfiða tíma. Einnig fannst mér svo gaman að sjá góðmennsku í fólki sem gaf sér tíma til að hjálpa samnemendum að læra eitthvað sem þeir áttu erfitt með og finna hvað við sem manneskjur erum sterkari og klárari þegar við vinnum sem teymi og gleymum einstaklingshyggjunni í smá stund – en það er svo sem alveg þekkt að ég er smá skrítin fyrir að elska prófatíð, mér finnst sko líka frábært að fá tölulega einkunn á skala um hversu vel ég stóð mig!
Mínar uppáhaldsminningar í HA í starfi eru líklega morgunkaffistundirnar í E-húsi. Fátt er betra á köldum vetrardögum en að sitja með kaffibolla eða orkudrykk og hlæja aðeins með góðum vinnufélögum til að brjóta upp skammdegið. Andrúmsloftið í vinnunni er eiginlega mín uppáhaldsminning.
Uppáhaldsstaður í HA?
Uppáhaldsstaðurinn í dag er kaffistofan í E-húsi og horfa á fallega útsýnið sem við höfum þar og spjalla við samstarfsfólk mitt. Sem nemandi voru uppáhaldsstaðirnir teppið góða, gamla stúdentafélagsskrifstofan og portið inn af matsalnum þegar sólin byrjaði að skína.
Hvaða þrjú orð dettur þér í hug þegar þú hugsar um HA?
Vinátta þar sem ég hef eignast góða vini í HA bæði sem stúdent og starfskraftur.
Metnaður þar sem ég finn að ég hef metnað fyrir starfi mínu hjá HA, sérstaklega þegar ég finn að aðrir eru með metnað fyrir sínu starfi.
Vöfflur, það eru einhvern veginn alltaf vöfflur einhvers staðar – ég er ekki að kvarta.