Smáar lífverur gegna stóru hlutverki

Allt líf á jörðinni komið undir örverum
Smáar lífverur gegna stóru hlutverki

Oddur Þór Vilhelmsson, prófessor við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri, var meðal skipuleggjenda 20. alþjóðaþings örveruvistfræðinga sem fram fór á Nýja-Sjálandi á dögunum.

Enginn er eyland – ekki heldur í náttúrunni. Sérhver lífvera þrífst nábýli við aðrar og það er sífellt að koma betur í ljós hve mikilvægar smæstu lífverurnar – örverurnar – eru fyrir heilbrigði og starfsemi stærri lífvera, og raunar vistkerfa í heild.

Án örvera myndi líf á Jörðinni raunar deyja út á skömmum tíma. Örverur knýja áfram mikilvægar efnahringrásir, brjóta niður lífræn efni og mynda náin tengsl við fjölmargar aðrar lífverur. Fræðasviðið sem rannsakar líf þeirra og hlutverk í vistkerfum Jarðar nefnist örveruvistfræði (e. microbial ecology).

Fjölbreytt hlutverk örvera

Ráðstefnan var afar vel sótt og rúmlega 1900 sérfræðingar hvaðanæva úr heiminum komu saman. Þeir kynntu nýjustu rannsóknir og ræddu fjölbreytt hlutverk örvera í efnahringrásum og vistkerfum Jarðar.

Oddur Þór Vilhelmsson, prófessor við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri, var meðal skipuleggjenda ráðstefnunnar. Hann stýrði málstofu um samlífi örvera og annarra lífvera ásamt Nicole Dubilier, forstjóra Max Planck-setursins í sjávarörverufræði.

Milljónasti hluti getur skipt sköpum

Oddur flutti jafnframt erindi um örverulífríki engjaskófa og sýndi fram á að jafnvel örverur sem finnast þar í afar litlu magni geti haft verulega þýðingu fyrir vistkerfið.

Þar tók hann meðal annars dæmi af plöntusýklinum Pseudomonas syringae. Bakterían er aðeins um milljónasti hluti þeirra baktería sem lifa á engjaskófum en getur engu að síður haft mikil áhrif á heilbrigði plantna og vistkerfa.

Erindi Odds byggði að hluta á doktorsverkefni Nataliu Ramírez, sem unnið var við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri. Rannsóknin minnir á að í náttúrunni er mikilvægi lífvera ekki endilega mælt í stærð eða fjölda, stundum geta allra smæstu og fámennustu íbúar vistkerfisins haft áhrif langt umfram stærð sína.