Veganestið er greinaflokkur á vegum Góðvina HA þar sem rætt er við brautskráða HA-inga.
„Ég fæddist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 4. janúar 1986 og ólst upp á Hauganesi. Þar til fyrir nokkrum árum þurfti ég gjarnan að útskýra hvar Hauganes væri á landinu en í dag eru landsmenn farnir að þekkja þessa perlu enda frábær áfangastaður, sérstaklega á sumrin.“
Eftir grunnskólagöngu lá leið Trausta í Verkmenntaskólann á Akureyri, þar sem hann stundaði nám á viðskiptabraut.
„Ég vissi ekkert sérstaklega hvað mig langaði að gera á þeim tímapunkti. Ég hafði þó eitt sinn sagt í enskutíma í grunnskóla að mig langaði að verða „stocker“. Ég hélt að það þýddi verðbréfamiðlari en hefði auðvitað átt að segja „stockbroker“, kennaranum til mikillar gleði. Ég held ég sleppi því að útskýra hvers vegna þetta var svona fyndið.“
Draumurinn um að verða „stocker“ réð þó ekki námsvalinu. Það var í Verkmenntaskólanum sem áhugi Trausta á markaðsfræði kviknaði fyrir alvöru. Eftir ársfrí frá skóla hóf hann nám í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri með áherslu á stjórnun og markaðsfræði.
„Ég taldi námið vera opið og hagnýtt ef ég skyldi vilja breyta um kúrs síðar. Í raun heillaðist ég þó bara enn meira af markaðsfræðinni.“
Frá notuðum bílum í markaðsstjórastólinn
Að lokinni útskrift frá HA árið 2011 flutti Trausti suður og hóf meistaranám í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands.
„Meðfram náminu seldi ég notaða bíla en viðurkenni fúslega að það starf lá ekkert sérstaklega vel fyrir mér. Ég var síðan svo heppinn að fá starf hjá VERT markaðsstofu sem ráðgjafi í stafrænni markaðssetningu. Þar öðlaðist ég fjölbreytta reynslu af markaðsmálum áður en ég réð mig til VÍS sem sérfræðing í markaðssetningu á netinu árið 2017.“
Hjá VÍS hefur Trausti fengið tækifæri til að vaxa og þróast í starfi. Hann varð síðar vörumerkjastjóri og tók að lokum við markaðsdeild fyrirtækisins. „Í dag starfa ég sem forstöðumaður markaðsmála, eða markaðsstjóri eins og það kallast í daglegu tali, og leiði þar frábært teymi sérfræðinga.“
„Það er alltaf eitthvað nýtt að gerast, hvort sem það er ný þekking, tækni eða nýjar aðferðir. Þess vegna þarf fólk í markaðsmálum sífellt að vera á tánum. Ég er þó á því að undirstöður markaðsfræðinnar breytist ekki mjög hratt. Það sem ég lærði í HA á enn mjög vel við þrátt fyrir allar þær breytingar sem hafa átt sér stað.“
Trausti fylgist vel með þróuninni, les bækur, hlustar á hlaðvörp og sækir fyrirlestra. Þá lauk hann MiniMBA-námi hjá Mark Ritson með áherslu á vörumerkjafræði.
„Það var gríðarlega öflugt nám og hentaði mér fullkomlega á þeim tíma, en ég var þá nýlega orðinn vörumerkjastjóri VÍS. Ég hef einnig fengið tækifæri til að miðla minni eigin reynslu, meðal annars sem fyrirlesari hjá Akademías og með gestafyrirlestri í þjónustumarkaðsfræði við HA síðasta haust.“
Faglegt, persónulegt og skemmtilegt
Trausti á góðar minningar frá árunum við Háskólann á Akureyri, bæði af náminu og fólkinu sem hann kynntist. „Sérstaklega eru mér minnistæð tímabilin fyrir próf og verkefnaskil þegar lært var fram eftir nóttu uppi í háskóla, jafnvel til morguns. Það voru ófáar heilar vökunætur fyrir verkefnaskil þar sem stemningin var skemmtileg en oft orðin ansi súr.“
„Námið lagði mjög góðan grunn að því sem síðar tók við. Það veitti mér breiða viðskiptafræðilega þekkingu en ekki síst sterkan grunn í markaðsfræði. Þar óx áhuginn enn frekar og varð til þess að ég fór í framhaldsnám. Námið í HA varð því grundvöllurinn að starfsferli mínum.“
Á fyrstu árum ferilsins fannst Trausta hann þó ekki alltaf geta nýtt markaðsfræðina sem hann hafði lært í háskóla enda snerust mörg verkefnanna um nýjustu tækni. „Með tímanum áttaði ég mig á því að markaðsfræðigrunnurinn var alltaf til staðar í undirmeðvitundinni og hafði áhrif á allt sem ég gerði. Eftir því sem ég hef tekið að mér ábyrgðarmeiri störf hef ég nýtt sífellt meira af því sem ég lærði. Ég er því mjög þakklátur fyrir menntunina sem ég hlaut.“ Að þessu sögðu skýrir vel hví Trausti velur orðin „faglegt, persónulegt og skemmtilegt“ aðspurður um hvaða orð hann sjái fyrir sér þegar hann hugsar til HA.
„Just do it!“
Þegar Trausti er beðinn um heilræði til þeirra sem íhuga nám í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun og markaðsfræði grípur hann í eitt þekktasta slagorð heims:
„Just do it! Ef fólki er alvara með að starfa við markaðsmál tel ég mjög mikilvægt að hafa góða menntun á því sviði. Það snýst ekki aðeins um að hafa prófgráðu á ferilskránni heldur þekkinguna og hugsunarháttinn sem námið veitir. Það mætti því kalla námið ágætt tvennutilboð. Menntunin auðveldar fólki að setja nýjan fróðleik í samhengi og hjálpar því að greina hvað er nytsamlegt og ekki síður hvað er það ekki. Það er nefnilega enginn skortur á lélegum ráðum í markaðsheiminum.“
Lokaráð Trausta er einfalt: „Umfram allt: Hafið gaman og verið forvitin.“
Við þökkum Trausta fyrir spjallið og óskum honum velfarnaðar í starfi. Fyrir áhugasöm má finna fleiri Veganestisviðtöl á Facebook-síðu Góðvina.