Fundur var haldinn fimmtudaginn 26. mars 2026 í Norðurborg og á Teams kl. 13:30.
Áslaug Ásgeirsdóttir rektor setti fund kl. 13:33
Mætt voru auk hennar:
Unnar Jónsson fulltrúi ráðherra
Guðmundur Kristján Óskarsson fulltrúi háskólasamfélagsins
Sigríður Sía Jónsdóttir fulltrúi háskólasamfélagsins
Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta
Ottó Elíasson fulltrúi Háskólaráðs
Bryndís Fiona Ford fulltrúi Háskólaráðs
Einnig mætt:
Sindri S.Kristjánsson skrifstofustjóri rektorsskrifstofu sem ritar fundargerð
Gestir:
Helga María Pétursdóttir forstöðumaður fjármála og greiningar
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna
Rektor kynnti dagskrá ásamt því að greina háskólaráði frá því að Stúdentafélag Háskólans á Akureyri skipaði nýjan varafulltrúa í háskólaráð á aðalfundi félagsins 2026. Háskólaráð býður Kötlu Ósk Káradóttur velkomna í hópinn.
1. Fjármál og rekstur
2601068
Helga María Pétursdóttir sat fund háskólaráðs undir þessum lið.
Helga María greindi háskólaráði frá rekstrarstöðu háskólans á tímabilinu janúar-febrúar 2026. Staðan lítur ágætlega út og rekstur á þessu stutta tímabili er vel undir áætlun ársins. Þau fáu frávik sem finna má í rekstraryfirlitinu skýrast fyrst og fremst af tímamismun, þ.e. að tekjur eða gjöld komi til á öðrum tíma en áætlun gerði ráð fyrir. Rektor varpaði ljósi á nokkur atriði sem meðlimir ráðsins spurðu út í.
2. Úthlutun úr rannsóknarsjóði
2603107
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir sat fund háskólaráðs undir þessum lið.
Guðrún Rósa gerði grein fyrir úthlutun úr rannsóknarsjóði Háskólans á Akureyri 2026, en Guðrún Rósa á sæti í stjórn Vísindasjóðs Háskólans á Akureyri sem heldur utan um rannsóknasjóðinn. Umsóknir voru samtals sautján og hlutu fimmtán umsækjendur styrk. Heildarúthlutunarupphæð var 25 m.kr. Rætt um kynjaskiptingu umsækjenda og hvernig úthlutanir skiptast eftir kyni. Guðrún Rósa svaraði spurningum háskólaráðs um úthlutunina.
3. Skipulagsbreytingar stoðþjónustu og stjórnsýslu
2603105
Rektor gerði háskólaráði grein fyrir framkvæmd skipulagsbreytinga í stoðþjónustu og stjórnsýslu háskólans sem háskólaráð ákvað að ráðast í á 482. fundi háskólaráðs 23. mars síðastliðinn.
4. Ársskýrsla 2025 og ársfundur 2026
2602041
Rektor greindi háskólaráði frá að ákveðið hefur verið að ársfundur Háskólans á Akureyri verði haldinn 12. maí 2026 nk. kl. 14:00. Gestur fundarins verður Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjórinn á Akureyri. Þá var greint frá því að vinna við að taka saman ársskýrslu háskólans fyrir árið 2025 er hafin og gengur samkvæmt áætlun.
5. Skipun nefndar við umsögn um tillögu veitingar heiðursdoktorsnafnbótar
2603078
Háskólaráði hefur borist ósk um að skipa sérstaka nefnd til að veita umsögn um tillögu heilbrigðis-, viðskipta og raunvísindasviðs að veitingu heiðursdoktorsnafnbótar við sviðið sbr. 13. gr. reglna sem tilgreina viðmið við veitingu doktorsnafnbótar í heiðursskyni við Háskólann á Akureyri nr. 735/2012.
Háskólaráð felur rektor að skipa í nefndina.
6. Erindi heilbrigðis-, raunvísinda- og viðskiptasviðs til háskólaráðs
2602027
Háskólaráði barst nýverið erindi frá stjórn heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs þar sem lagðar eru fram tillögur að breytingum í tengslum við afgreiðslu umsókna um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks. Erindið og fyrirkomulag ótímabundinna ráðninga akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri var rætt ítarlega.
Háskólaráð þakkar fyrir erindið og felur rektor að ræða við aðstoðarrektor og stjórnendur fræðasviða um útfærslu á vinnu við endurskoðun á reglum um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Í kjölfarið leggi rektor tillögu fyrir háskólaráð til samþykktar.
7. Erindi heilbrigðisráðuneytis til háskólaráðs
2509095
Rektor gerði grein fyrir erindi heilbrigðisráðuneytisins til háskólaráðs Háskóla Íslands, háskólaráðs Háskólans á Akureyri, Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Ljósmæðrafélags Íslands dags. 27. febrúar 2026. Erindið hefur að geyma afstöðu til þeirra lágmarkskrafna sem heilbrigðisráðuneytið mun leggja til grundvallar útgáfu starfsleyfis fyrir hjúkrunarfræðinga hér á landi. Háskólaráð ræddi erindið.
8. Ný námsleið við sálfræðideild
2409103
Rektor kynnti tillögu sálfræðideildar hug- og félagsvísindasviðs um nýja námsleið. Um er að ræða 240 ECTS eininga námsleið, sálfræði með íslensku sem annað mál.
Háskólaráð samþykkir tillöguna. Háskólaráð áréttar að tillögur til ráðsins um nýtt nám og nýjar námsleiðir skulu berast fyrir lok nóvember hvers árs samkvæmt fyrirliggjandi verklagsreglum og að tillögur skuli berast háskólaráði frá fræðasviðsforseta.
9. Bókfærð mál til samþykktar
- Fjöldatakmarkanir í hjúkrunarfræðideild vegna vormisseris 2027 2602075
- Fjöldatakmarkanir í sálfræðideild vegna vormisseris 2027 2603108
Samþykkt.
10. Til fróðleiks
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:36.