484. fundur Háskólaráðs

Fundur var haldinn fimmtudaginn 30. apríl 2026 í Norðurborg kl. 13:30.

Áslaug Ásgeirsdóttir rektor setti fund kl. 13:30

Mætt voru auk hennar:

Bjarni S. Jónasson varafulltrúi háskólaráðs
Guðmundur Kristján Óskarsson fulltrúi háskólasamfélagsins
Helena Sigurðardóttir varafulltrúi háskólasamfélagsins

Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta
Unnar Jónsson fulltrúi ráðherra

Einnig mætt:

Sólveig Elín Þórhallsdóttir lögfræðingur rektorsskrifstofu sem ritar fundargerð

Gestir:

Harpa Halldórsdóttir sérfræðingur fjármálagreininga
Helga María Pétursdóttir forstöðumaður fjármála og greiningar

Fjarverandi:

Bryndís Fiona Ford fulltrúi Háskólaráðs
Ottó Elíasson fulltrúi Háskólaráðs

Sigríður Sía Jónsdóttir fulltrúi háskólasamfélagsins

 

Rektor kynnti dagskrá.

1. Fjármál og rekstur

2601068

Helga María og Harpa sátu þennan lið fundarins.

Heildarfjárhagsstaða háskólans núna er neikvæð um 17 m.kr. með sértekjueiningum. Án sértekjueininga er staðan jákvæð um 4,8 m.kr. þar sem rekstur sértekjueininganna er neikvæður um 22 m.kr. Rætt var um áhrif dóms Landsréttar vegna greiðslu vangoldins orlofs á fasta yfirvinnu starfsfólks sem á aðallega við um stoðþjónustu og stjórnsýslu.

Ársreikningur 2025

Afkoma ársins 2025 var jákvæð um 71,7 m.kr. Heildarvelta jókst um 15% á milli ára og heildargjöld um 14%. Eigið fé er komið í 215,5 m.kr. sem kemur sér vel þar sem búist er við að rekstur ársins 2026 verði erfiður.

2. Staða umsókna um nám við Háskólann á Akureyri haustmisseri 2026

2604050

Farið yfir umsóknartölur vegna haustmisseris 2026. Aðeins fleiri umsóknir hafa borist núna miðað við á sama tíma í fyrra að teknu tilliti til heimskautaréttar sem ekki er tekið inn í á þessu ári. Mikil aðsókn er í lagadeild, kennaradeild og framhaldsnám í stjórnun við viðskiptadeild.

3. Beiðni frá SHA um aðgang að lokaprófum ársins 2025

2602032

Rektor fór yfir beiðni SHA um aðgang að öllum lokaprófum sem haldin voru við HA árið 2025. Rektor hélt upplýsingafund um málið 28. apríl sl. með starfsfólki háskólans. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur verið mjög skýr í túlkun sinni á upplýsingalögunum hvað afhendingu prófa varðar. Stefnt er á að afhenda gögnin eftir að seinni próftíð lýkur.

4. Drög að svari til heilbrigðisráðuneytis vegna náms í hjúkrunarfræði

2509095

Drög að svari Háskóla Íslands til heilbrigðisráðuneytisins, varðandi fyrirhugaðar breytingar á námskrá í hjúkrunarfræði, voru rædd. Samþykkt var að fela rektor að vinna málið áfram.

5. Staða skipulagsbreytinga stoðþjónustu og stjórnsýslu

2603105

Búið er að tilkynna starfsfólki háskólans þessar breytingar. Rektor hefur haldið fundi með þeim starfsmönnum sem breytingarnar snerta. Búið er að auglýsa tvær stöður sviðsstjóra í stoðþjónustu og stjórnsýslu.

6. Til fróðleiks

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:06.